Friday, September 15, 2006
RIP...

Þetta blogg er búið... nýja bloggið er

www.hlinj.bloggar.is

 

 


Posted at 15.9.06 by Hlinj
Viltu bæta e-ju við??  




Tuesday, September 12, 2006
Ef þú sérð þetta ertu heppin...

... ég veist stundum ekki hvað ég er að púkka upp á þessa síðu, ég kemst inn á hana einu sinni á dag ef ég er heppin og svo er maður að heyra að fólk komist bara ekki á hana yfir höfuð.

Eins og alþjóð veit átti hann Axel minn einasti eini 1.árs afmæli á föstudaginn. Auðvitað kíkti ég til þeirra með pakka. Það var sparibaukur sem hélt á hamri, já maður getur ekki opnað hann, heldur verður maður að brjóta hann. Auðvitað setti ég líka smá pening þar ofaní Big Smile Hélt svo til Hildar, þar sem ég Hlín, Kristín og auðvitað hún Hildur pöntuðum við pítsu. Síðan drukkum við og Björk og kolla komu svo seinna. Síðan var haldið í Stuðtjaldið fyrir framan HÍ og verð ég bara að segja að mér fannst engan veginn skemmtilegt. Kristín Ólöf fór fyrst heim, svo fór Hildur, ég ætlaði að reyna að þrauka aðeins lengur en þegar ég sá að stelpurnar voru ekkert á leiðinni að fara niðrí bæ ákvað ég bara að drífa mig heim.

Laugardagurinn var tekin rólegur, við horfðum auðvitað á boltann þar sem mínir menn unnum 1-0 en liðið hans Hannesar (Liverpool) gerði sér lítið fyrir og tapaði 3-0. Það er alltaf gaman. Kíktum svo öll þrjú í mat til pabba og Evu. Axel var líka í boðinu og var slegið til heljarinnar veislu (mamma var úti í Slóveníu). Fórum svo heim um hálf 11 eftir að hafa hámað í okkur ís og dýrindis kræsingar sem pabbi eldaði.

Sunnudagurinn fór í verstu sundferð sem ég hef á ævinni farið í (ok kannski smá ýkjur) en það var svo mikið rok að það var ekki hægt að vera með hausinn upp úr lauginni. Kíktum svo í smá heimsókn á systur hans Hannesar. Svo fórum við á bílasölurúnt... og hallelúja hvað ég fann bílinn sem mig (okkur Big Smile) langar í... Peugeot 307, svartur, með svörtum afturrúðum. GEÐVEIKUR! Hannes ætlar að tjékka á honum betur í dag...

Jæja. Nú þarf ég að fara að læra. LESA LESA LESA!!

Kveðja Hlín


Posted at 12.9.06 by Hlinj
Comments (4)  




Thursday, September 07, 2006
Elsku Axel ástin mín...

Það er svo ótrúlegt til þess að hugsa að fyrir ári (á morgun) þegar ég var að labba niður hliðargötu í Svíþjóð með henni Írisi að pabbi þinn hringdi í mig og tilkynnti mér að ég væri búin að eignast þig. Vá, ég hef aldrei á ævinni verið eins glöð, allt í einu byrjuðu tárin að renna og ég gat bara ekki hamið það, loksins var ég búin að eignast lítinn frænda. Ekki var minni gleði þegar pabbi þinn hringdi í mig nokkrum dögum seinna og bað mig um að vera guðmóðir þín, gæti ekki hugsað mér betra starf Big Smile Það er svo gaman að geta fylgst með þér, taka tennur, velta þér, byrja að skríða og núna síðast þegar ég varð vitni afþví þegar þú dróst þig upp á lappirnar í fyrsta skiptið, svo ekki sé talað um hvað þú ert duglegur að labba með smá hjálp Wink. Það er svo yndislegt að sjá í augum þínum allt þetta traust og væntumþiggju sem þú berð til mín. Ég ætla aldrei að gera neitt sem brýtur þetta traust, því eitt er víst að þú átt mig alltaf að. Ég elska þig svo heitt að orð fá því ekki lýst. Innilega til hamingju með afmælið þitt á morgun ástin mín, nú verðuru ekki lengur 0 ára heldur 1. árs.

                 

kveðja Hlín frænka þín...


Posted at 7.9.06 by Hlinj
Viltu bæta e-ju við??  




Monday, September 04, 2006
Fjóla, Fjóla, Fjóla!!

Í gær kíktum við á fótboltaleik. Engan annan en Fylkir-KR. Fjóla vissi fyrir leikinn að ef hún myndi skora 4 mörk á móti þessu liði þá fengi hún bronsskóinn frá KSÍ! Jæja, við mættum á leikinn á fínum tíma og náðum að sjá þegar þær hlaupa inn á völlinn til að leikurinn byrji. Eftir 5 mínútur var komið eitt mark, eftir 10 mínútur voru komin tvö mörk. Svo á 20 mínútu fengu þær víti og engin önnur en vítaskytan Fjóla tók hana. Svo á 30. mínútu innsiglaði Fjóla þetta hjá sér og skoraði 4 markið. Í seinni hálfleik skoraði hún svo 5 markið sitt og er örugg með bronsskóinn... TIL HAMINGJU FJÓLA!!

Skandall með Valur-FH. ég á bara ekki til orð yfir þessu "stórveldi" en FH-ingar eru svo ruglaðir að það á örugglega bara við um Meistaraflokk karla í fótbolta því að ekki geta aðrar deildir hjá þeim neitt, jú kannski frjálsar en þeir eru líka einir á báti fjármagna allt sjálfir og fá bara lánað nafnið eða einhvað svoleiðis....

Svo við tölum áfram um fótbolta, sumarslúttið var í vinnunni á laugardaginn og var efnt til fótboltamóts. Ég og Gulla mættum með bjór í hendi og hvöttum áfram TNT liðið sem svo gerði sér lítið fyrir og vann mótið í dramatískum úrslitaleik þar sem ég var að fara á taugum. Svo var kíkt hingað heim í "partý" ég hafði mig til á mettíma því að fyrstu partýgestirnir voru að mæta þegar ég var nýbúin að klæða mig, en það var allt í lagi, það voru bara Gulla og Fjóla Big Smile hér var drukkið hvítvín og bjór, svo var farið niðrá Hressó þar sem var meiri bjór og tekin nokkur staup. Röltum yfir á Glaumbar þar sem ég kynnti Gullu fyrir Jonna einum sem ég kynntist svo vel með Írisi fyrir nokkrum helgum Wink og svo var haldið á Celtic þar sem trúbradora stemmingin var í hámarki... geðveikt gaman.

Kveðja Hlín


Posted at 4.9.06 by Hlinj
Comments (2)  




Friday, September 01, 2006
Nýr dagur, nýir tímar.

Fyrsti skóladagurinn liðinn og ég get ekki sagt annað en að ég er ótrúlega spennt fyrir þessum vetri. Er í þremur fögum og einum próflausum, sem þýðir eiginlega bara að það eru meiri verkefni Shocked en ég tek öllu ef ég slepp að taka próf.

Fór á kynningarfund hjá félagsvísindadeild í gær og komst að sotlu merkilegu. Fjármagn til þeirrar deildar er nærri helmingi minna en fjármagn til annarra deilda, sem skilar sér í færri tímum sem eru nær allir fyrirlestrartímar (mér finnst það reyndar fínt) en stóra spurningin er, afhverju á ég, sem fæ helmingi minni kennslu en aðrir að borga sama gjald til að fara í þennan skóla. Já kerfið er svo skrýtið og asnalegt!!

Búin að kaupa eina bók, ætla að lesa einhvað í henni um helgina, vera voðalega dugleg! svo er djammerí á morgun, búin að ganga frá lausum endum við hana Gullus hún mætir og auðvitað kemur stuðboltinn hún Fjóla þótt að hún sé að fara að keppa daginn eftir... híhí Big Smile hlakka til að mæta á þetta fótboltamót og sitja og sötra bjór allan tímann á meðan Hannes og restinn af TNT hópnum spilar fótbolta Big Smile

Mér finnst ég einhvað vera orðin svo fullorðin. Byrjuð í háskóla, farin að hafa peningaáhyggjur og síðast en ekki síst ástfangin upp fyrir haus...

Jæja er farin að borga stöðumælasekt sem ég fékk hérna fyrir utan í gær!! glatað...

Góða helgi


Posted at 1.9.06 by Hlinj
Comments (2)  




Saturday, August 26, 2006
Já, þá kláruðum við hringinn....

... komum heim í gær, bara soldið þreytt og lúin ef ég á að segja alveg eins og er. Við eyddum yndislegum dögum í 20-30 stiga hita á Illugastöðum. Fórum á föstudeginum fyrir viku og byrjuðum á laugardeginum að fara með mömmu og pabba í 11 tíma ferð um Norður&norðausturland. Fórum á Húsavík, yfir Tjörnes, kíktum á Hljóðakletta, í Ásbyrgi og Dettiföss og hverina við Mývatn. Böðuðum okkur í jarðböðunum og löbbuðum um Dimmuborgir (sem eru við Mývatn) og síðasti áfangastaðurinn var Goðafoss. Stór hringur þetta, enda var ég búin á því, borðaði og fór upp í rúm Tongue einnig sem við gerðum var að keyra Eyjafjörðinn og inn hann, kíktum á smámunasafnið, keyrðum aftur á Húsavík og fórum á Reðursafnið, löbbuðum aftur Dimmuborgir, leituðum að Ullarfossi (sem tókst by the way) og gerðum tilraun til að komast inn í Náttfaravík en komumst að því tveimur dögum seinna að maður verður að fara með báti þangað Shocked týpikal ég.... kláruðum svo hringinn tilbaka. Gistum á Hvoli og komum svo í bæinn um 2 í gær. Svaka skemmtilegt.

Komumst líka að sotlu um Akureyri, það er endaþarmur alheimsins (tekið frá honum elskulega bróður mínum) við vorum í 2 tíma á þriðjudaginn að leita að stað þar sem Liverpool leikurinn í meistaradeildinni var sýndur, fengum nokkrar ábendingar frá local fólki þarna en ekkert gerðist, þangað til að við fórum óvart inn á Pizza67 og þar var stór skjár og við gátum horft á leikinn, jæja þótt að þetta hafi bara verið leiðinlegur leikur.

Litli æðislegasti frændi minn ætlar að halda upp á afmælið sitt í dag. Axel verður 1 árs eftir 2 vikur og verður brjálað afmæliðboð heima hjá mömmu á eftir. Við förum auðvitað og Elva skott kemur að sjálfsögðu með okkur. Svo í kvöld ætlar Fjóla kannski að kíkja á okkur, bara stuð. Næsta helgi verður líka tekin á einhvað skrall. Fótboltamót í vinnunni og ætla ég að draga Fjólu og Gullu með mér á það. Búin að tala við Fjólu, á ekki von á öðru en Gulla eigi eftir að samþykkja þetta Big Smile


Posted at 26.8.06 by Hlinj
Comment (1)  




Wednesday, August 16, 2006
Elsku Hannes minn...

... innilega til hamingju með afmælið sæti minn.

Til að halda upp á afmælið hans Hannesar ætlum við að fara með Elvu litlu skottu út að borða í kvöld. Og svo ætla ég að koma honum á óvart á morgun Big Smile ohhh ég er svo mikið fyrir þetta surprise dæmi Wink Svo til að kóróna fagnaðarhöldin er "síðasti" vinnudagurinn minn á morgun og svo er bara sumarbústaður með Hannesi og mamma og pabbi ætla að kíkja yfir helgina... Sweeeet Big Smile

Þið heyrið því væntanlega ekkert í mér fyrr en næstu helgi því að ég ætla ekki að vera í netsambandi í viku Big Smile en ég verð í símasambandi... hehe

heyri í ykkur seinna mínar elskur, og hafið það gott á Menningarnótt Big Smile


Posted at 16.8.06 by Hlinj
Viltu bæta e-ju við??  




Friday, August 11, 2006
Í ljósi Gay Pride kom smá pæling....

Einn daginn í þessarri viku var ég að keyra á litla póstbílnum þegar ég fór allt í einu að hugsa um hinssegin dagana sem eru núna um helgina. Svo kom pæling upp í hausinn á mér:"afhverju á þessum tímum þegar allt er orðið miklu opnara fyrir samkynhneigð er ekki búið að semja ástarlag um strák/stelpu sem er í ástarsorg útaf sama kyni" svo byrjaði lag með Friðriki Ómari að hljóma (sem mér finnst æðislegt) og þá var hann einmitt að syngja til karlmanns... vá hvað ég var ánægð, loksins komið lag um samkynhneigðan mann í ástarsorg (ekki að það sé gott að vera í ástarsorg en þið skiljið hvað ég er að tala um)....

Mætti svo galvösk í vinnuna í dag og spurði einn strák sem er að vinna með mér hvort að hann ætli ekki á Gay Pride. Svarið sem ég fékk olli mér miklum vonbrigðum:"nei ég skil ekki afhverju þeir eru að flagga þessu, ekki er gagnkynhneigt fólk niðrí bæ að sýna það" vá hversu glatað er þetta viðhorf!

Í ljósi einmitt þessarar miklu hátíðar sem á sér stað á morgun ákvað ég að bregða undir mér betri fætinum og fá hann Axel litla pjakk lánaðann. Ætla að fara með Írisi minni og Hafrúnu hennar niðrí bæ og ekki ætla ég að vera 3 hjólið Big Smile Ætla einmitt með Írisi, Anný, Önnu Rut, Sigrúnu og Erlu Guðrúnu gömlum Móaflatarstelpum út að borða í kvöld, ætla að kíkja til Írisar og við ætlum að fá okkur einn öl eða svo og fá okkur bara hvítvín með matnum og vera góðar á því...

Gleðilega hátíð samkynhneigðir... skemmtið ykkur æðislega um helgina Big Smile


Posted at 11.8.06 by Hlinj
Comments (4)  




Tuesday, August 08, 2006
Helgin...

... var alveg æðisleg. Gerði ekkert nema að spila, drekka hvítvín og rauðvín og fórum jú á laugardeginum í smá túr um Þjórsárdalinn. Komst þá að því að ég er á móti Kárahnjúkavirkjun því ég sá fallegasta svæði sem ég hef á ævinni séð og það fer víst allt undir vatn cry jæja verð bara að labba þetta betur áður en það gerist...

Er núna að fara í magaspeglun, smá svona fiðringur í maganum, loksins kemst ég að því hvað er að hrjá mig. Ekkert smá glöð með það.

Til hamingju með daginn Gulla sem er 24 (VÁ Big Smile) í dag, Betty sem er 31 árs og Axel Þór litla æðið mitt sem er 11 mánaða Big Smile... Love you all...

Kveðja Hlín


Posted at 8.8.06 by Hlinj
Comments (3)  




Saturday, August 05, 2006
Gleðilega og góða helgi...

Erum á leiðinni upp í bústað... hafiði það gott um helgina Big Smile


Posted at 5.8.06 by Hlinj
Viltu bæta e-ju við??  




Next Page

hlin_j@hotmail.com


   









Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed